Ýmsir
21.04.2006 22:13:28 / ágústa

................

Hef ákveðið að skipta um blogg kerfi.....  Ég kollféll fyir þessu kerfi er ég skoðaði síðuna hennar Hreindísar ....

Nýja síðan er www.agustaosk.bloggar.is

kv.

ágústa


» 0 hafa sagt sína skoðun

13.04.2006 12:14:58 / ágústa

Rakst á þetta!!!!!!!!!!


Einn daginn var maður að röllta


Þá kom hann auga á liggandi konu


Og þá byrjaði hringekjan


Svo stökk hann út í djúpu laugina..


Og bauð henni út að borða


Þau fengu sér pulsu og kók


Og ferðuðust saman um heiminn


.. fóru í hvalaskoðun


Og á hestbak..


Hann fór með hana í nálægt sæluhús


Og hún sagðist vera á pillunni


Hún lagðist á rúmið


Og glennti í sundur á sér lappirnar


Og holdið fór að rísa á okkar manni.


.. og hann fór inn í göngin.


Inn og út.. Inn og út.


Hann fann strax að hún var ekki óspjölluð

The image ?http://www.veg.is/vefur2.nsf/cb42dd93b911fde800256935003ea5f5/d574dccc63f266310025700a003ac7e6/Body/0.966?OpenElement&FieldElemFormat=gif? cannot be displayed, because it contains errors.
Hann stakk upp á því að taka hana aftanfrá..

The image ?http://www.veg.is/vefur2.nsf/cb42dd93b911fde800256935003ea5f5/9d935ac6ae6512cd0025700a003ac76c/Body/0.118?OpenElement&FieldElemFormat=gif? cannot be displayed, because it contains errors.
En hún harðneitaði því!


Henni fannst hann ekki fara nógu hratt..

The image ?http://www.veg.is/vefur2.nsf/cb42dd93b911fde800256935003ea5f5/cc8249a8c45c28010025700a003ac79f/Body/0.1AC8?OpenElement&FieldElemFormat=gif? cannot be displayed, because it contains errors.
Og gerði grín af litla tólinu hans.

The image ?http://www.veg.is/vefur2.nsf/cb42dd93b911fde800256935003ea5f5/107640f37142b2160025700a003ac776/Body/2.3B1E?OpenElement&FieldElemFormat=gif? cannot be displayed, because it contains errors.
Svo hann kveikti á sleggjunni..

The image ?http://www.veg.is/vefur2.nsf/cb42dd93b911fde800256935003ea5f5/42f13687fe0a4f4b0025700a003ac797/Body/0.128?OpenElement&FieldElemFormat=gif? cannot be displayed, because it contains errors.
Og óð í öll göt sem hann sá.

The image ?http://www.veg.is/vefur2.nsf/cb42dd93b911fde800256935003ea5f5/1c911a37a7ef66d30025700a003ac78f/Body/0.112?OpenElement&FieldElemFormat=gif? cannot be displayed, because it contains errors.
Og þegar hún hafði séð alla liti regnbogans..


Öskraði hún STOP!

The image ?http://www.veg.is/vefur2.nsf/cb42dd93b911fde800256935003ea5f5/9cb5eec3a39d2a4e0025700a003ac746/Body/0.116?OpenElement&FieldElemFormat=gif? cannot be displayed, because it contains errors.
Því hún hafði ekki sagt honum sannleikann!

The image ?http://www.veg.is/vefur2.nsf/cb42dd93b911fde800256935003ea5f5/86a81103b2093a110025700a003ac79d/Body/0.B08?OpenElement&FieldElemFormat=gif? cannot be displayed, because it contains errors.
Hún var ekki á pillunni!

The image ?http://www.veg.is/vefur2.nsf/cb42dd93b911fde800256935003ea5f5/267199dc0b647b030025700a003ac761/Body/0.122?OpenElement&FieldElemFormat=gif? cannot be displayed, because it contains errors.

Hann missti stjórn á sjálfum sér

The image ?http://www.veg.is/vefur2.nsf/cb42dd93b911fde800256935003ea5f5/b15f49e2979dc5660025700a003ac7c3/Body/0.2462?OpenElement&FieldElemFormat=gif? cannot be displayed, because it contains errors.
Og missti stjórn á fleiru ....


Fékk nóg og gekk út!

The image ?http://www.veg.is/vefur2.nsf/cb42dd93b911fde800256935003ea5f5/05c50df5fedef2450025700a003ac78c/Body/0.1ED6?OpenElement&FieldElemFormat=gif? cannot be displayed, because it contains errors.
9 Mánuðum seinna hringir hún..

The image ?http://www.veg.is/vefur2.nsf/cb42dd93b911fde800256935003ea5f5/46e9922d542646810025700a003ac76b/Body/0.244?OpenElement&FieldElemFormat=gif? cannot be displayed, because it contains errors.
Af sjúkrahúsinu..

The image ?http://www.veg.is/vefur2.nsf/cb42dd93b911fde800256935003ea5f5/66c36ebb238781d60025700a003ac757/Body/0.10A?OpenElement&FieldElemFormat=gif? cannot be displayed, because it contains errors.
Hann var orðinn pabbi!

The image ?http://www.veg.is/vefur2.nsf/cb42dd93b911fde800256935003ea5f5/c90b33a9dba843770025700a003ac7ad/Body/0.EC0?OpenElement&FieldElemFormat=gif? cannot be displayed, because it contains errors.
Hann vildi ekki fjölskyldu..


Lífið hans hrundi!

The image ?http://www.veg.is/vefur2.nsf/cb42dd93b911fde800256935003ea5f5/d0d13f817de9150e0025700a003ac80d/Body/0.1C8?OpenElement&FieldElemFormat=gif? cannot be displayed, because it contains errors.
Og eftir það lá allt niður á við..

The image ?http://www.veg.is/vefur2.nsf/cb42dd93b911fde800256935003ea5f5/18b9e74f3cac818c0025700a003ac7a9/Body/0.1810?OpenElement&FieldElemFormat=gif? cannot be displayed, because it contains errors.
Og hann vildi bara deyja..

The image ?http://www.veg.is/vefur2.nsf/cb42dd93b911fde800256935003ea5f5/a4162ab837f751980025700a003ac7d7/Body/0.110?OpenElement&FieldElemFormat=gif? cannot be displayed, because it contains errors.
Og boðskapurinn með þessu er..

The image ?http://www.veg.is/vefur2.nsf/cb42dd93b911fde800256935003ea5f5/aae89a983797ef530025700a003ac788/Body/0.11A?OpenElement&FieldElemFormat=gif? cannot be displayed, because it contains errors.

Ef þið viljið ekki gera stelpu ólétta..

 

NOTA SMOKKINN!


» 4 hafa sagt sína skoðun

05.04.2006 22:38:51 / ágústa

Loksins, loksins

Já loksins kemur blogg frá mér.  Ég hef ekki bloggað síðan 15. mars.  Sumum finnst það gott en ég þekki nokkra sem hafa verið að kvarta yfir bloggleysi mínu undanfarið.  Hvað heldur þú ???  Það veit enginn nema þú.

En allt gott að frétta hjá mér.  Endalaust að gera í skólanum og svo er mikið álag á mér í Rauða krossinum og svo er það margt margt fleira sem er að bætast ofan á þetta tvennt svo ég hef eginleg bara engan frítíma.  En það er að koma páskafrí og ég ætla að nota það viturlega með því að slappa af, skemmta mér og læra undir vorprófin.  Hvað ætlar þú að gera við þitt páskafrí ??

Kosningavika í gangi í skólanum svo það er endalaust verið að bjóða manni gotterí og svona já til að reyna að kaupa sér einhver atkvæði.  Ég er svona næstum því búin að gera upp huga minn í flestu.  En ég hef morgundaginn og föstudaginn til þess að ávkveða mig.  Þar sem ég ætla nú að kjósa á föstudagskvöldið.  Svolítið slæmur tími þar sem á föstudaginn er úrslitakvöldið í Idolinu og það eru aðeins Snorri og Ína sem eru eftir.  Já þó að ég sé ekki með stöð 2 þá hef ég verið frekar dugleg við að fylgjast með Idolinu.  Guðrún er kanski orðin pirruð á mér þar sem ég er oftast hjá henni á föstudagskvöldum að horfa á Idolið.

En svo eru það fermingarnar sem eru byrjaðar.  Ég er þegar búin að syngja í einni fermingunni og eru næstu á sunnudaginn.  Svo eru það auðvitað fermingaveislurnar sem er búið að bjóða manni í.

En svo er það söngvakeppni framhaldsskólanna sem er á laugardaginn.  Það er nú ekki ómerkilegt.


» 7 hafa sagt sína skoðun

15.03.2006 18:58:57 / ágústa

Dagurinn í dag og síðan hvenær?

Já í dag nei þetta er ekki góð byrjun! Síðan ég bloggaði síðast hefur ekki það mikið gerst! eða hvað??

Ég, Ágústa Ósk var veik í heila viku:!: Sem er búið að vera frekar fúlt en ég hef komist að mörgu á þessari viku sem ég var veik.  Ég koms til dæmis að því hvað ég var hroðalega leiðinlegt barn í æsku.  En já svo á föstudeginum hélt Tinna upp á afmælið sitt og ég komst ekki þar sem ég var veik svo ég fór bara til ömmu Svölu og var í mat og horfði á Idolið með ömmu og afa þar sem þau hafa mikinn áhuga á því:!:  Á laugardeginum héldu Petra og Hreindís upp á afmælin sín saman fyrir okkur MH stelpurnar og ég sem missti af afmælinu hennar Tinnu og fannst það allveg hræðilega leiðinlegt ákvað ég að skella mér í þetta afmæli hjá stelpunum þó ég væri m eð í hálsinum og með nokkur mikinn hita:!:  Ég skemmti mér svona konunglega vel og vil nota tækifærið og þakka stelpunum fyrir skemmtilegt afmæli:!:  Við fórum út að borða og skelltum okkur svo í bíó að sjá RENT sem er ein snilldar mynd.  Hreindís varð frekar tilfinninganæm í seinni part myndarinnar en það var ekkert miðað við mig þar sem ég grét bókstaflega úr mér augun:!:  Þegar ég kom út úr bíóinu var ég rennandi blaut á kinnunum og á hálsinum (sem var ekkert frekar þæginlegt en só watt).  Síðan skelltum við okkur heim til Petru og töluðum aðeins saman og svona eins og stelpur gera í flestum sovna afmælum.

Síðan í gær var aðalfundur Kjósarsýsludeildar hjá Rauða krossinum og var ég og Frantz og Karen með kynningu á ungmennastarfinu og skyndihjálparhópnum sem ég og Björk elska erum að koma á laggirnar.  Það var mjög gaman í gær þar sem þessi fundur var mjög fræðandi og skemmtilegur.

Vitiði hvað gerðist í morgun hjá mér??  Ég tók strætó í skólann og þar sem það er búið að breyta aðeins strætókerfinu er kominn nýr strætó í ártún nr. 18 og ég hélt að það væri strætisvagn nr. 6 og fór upp í hann og hélt að ég væri nú bara að fara venjulega leið í skólann en NEI.  Ég fór einvherja skringilega leið beygja hjá sprengisandi og þurfti að fara út hjá veðurstofunni.  Ég var ekki viss um að ég næði í skólann á réttum tíma svo ég var búin að sætta mig við það að ég þyrfti að skrópa í nát 103 (sem er ekki sniðugt) en nei ég náði  á svona fjári góðum tíma í skólann að það var ekkert smá.  Ég sem hélt að ég væri að verða sein en NEI þetta reddaðist allt:!:

Í dag eftir skóla var síðan mjög skemmtilegur fyrirlestur sem Sjón var með um bókina sína "Skugga-Baldur" sem ísl 203 á að veðra búinn að lesa.  Það var mjög gaman á þessum fyrirlestri, ég sem hélt að þetta yrði ekkert svo skemmtielgt en Sjón er bara einn skemtmielgasti maður í persónu.  Þetta var virkilega áhugavert og mæli ég með því að allir ungir sem aldnir lesi þessa bók.

Eeeeeeen á morgun er Gettu Betur keppnin á milli MH og MS og auðvitað vitum við hver vinnur.  Mig langar allveg rosalega að fara á viðureignina en sögukennarinn minn og Hreindísar setti erfitt próf á föstudaginn svo ég verð að læra núna mjög vel og rifja upp á morgun ef ég ætla að komast á keppnina sem mig dauðlangar til:!:

En ég frétti að í kvöld er grímuball hjá kvennó og vil ég óska stelpunum skemmtilegs kvölds og bara fjöri.

Sagan kallar sjáumst elskurnar:haha:;););)


» 3 hafa sagt sína skoðun

03.03.2006 10:22:33 / ágústa

Já......

Já...... 

  

Já...... Í kvöld er afmæli hjá henni Sóley sætu því hún varð 17 ára síðasta þriðjudag! Ég hlakkar mikið til að fá að hitta allar stelpurnar úr "mosó" genginu þar sem ég hef ekki hitt stelpurnar í langan tíma fyrir utan hana Hreindísi mína sem ég hitti á hverjum degi en það er önnur saga!  Ég hitti reyndar Sóley í strætó á þriðjudaginn, það var fínt langt síðan ég hafði hitt hana svo þetta átti vel við!

Ég sit hér á bókasafninu í skólanum því ég hef ekkert að gera nema það að blogga og prenta út ritgerðina mína sem ég á að skila í dag en þar sem kennarinn er forfallaður þarf ég ekkert að vera að stressa mig á því hvenær ég skila henni í dag! Ég ætti að vera í íslensku núna en já eins og ég sagði áðan þá er kennarinn forfallaður svo það er frí í ísl 203 hjá mér!

En já.....Helga var að setjast hérna við hliða á mér þar sem kennarinn hennar mætti ekki og er ég því fegin því þá þarf ég ekki að vera ein í þessarri eyðu minni. Ætli ég fari ekki að kvðeja núna þar sem ég þarf að prenta þessa ritgerð út og svoleiðis en já fyrir gefið mér ef þetta blogg lendir allt í einni klessu þar sem þetta blogg forrit er eitthvað í fokki í dag!


» 2 hafa sagt sína skoðun

01.03.2006 18:05:54 / ágústa

Afmælisblogg

Ég vildi bara óska Hreindísi og Sóley hjartanlega til hamingju með 17 ára afmælið:!:  Hér koma svo myndir af afmælisbörnunum:!:


» 0 hafa sagt sína skoðun

25.02.2006 22:15:22 / ágústa

Langt síðan ég bloggaði síðast! Margt hefur drifið á daga mína síðan þarna 15 feb.

Óóóóó já..............

 

 



Lagningardagar (voru miðviku-, fimmtu- og föstudag.)og MH árshátíðin voru síðasta miðvikudag:!:  Lagningardagarnir voru allveg æðislegir:!:  Ég get ekki lýst því betur:!:  (samt ég held/er viss um að Lagningardagarnir eru betri en skóhlífadagarnir í Borgó en já..)  Á miðvikudeginum byrjuðum við stelpurnar á því að skella okkur á fyrirlestur hjá Stígamótum þegar það var búið varhalfið í hátíðarsalinn í danskennslu og gekk mér allveg rosalega vel þó ég segji sjálf frá þar sem ég kunni dansinn en annað var að segja um hana Hafdísi elsku:!: (ekki móðgast)  Hún er samt allveg yndislegur dansari ef hún er ekki í keppni:!:  Hún var ein í keppni, ég held samt að hún hafi haldið að ég væri í henni líka þar sem ég var dansfélaginn hennar en það var mikill miskilmimgur:!:  Hafdís var komin í þannig keppni að við urðum að vera á undan Hreindísi og Petru í takti:!:  Ekki allveg það gáfulegasta en samt:!:  Eftir það var klukkutíma hlé hjá okkur og skelltum við okkur í kringluna því ég og Hreindís þurftum að finna okkur efripart fyrir árshátíðina:!:  Þegar við vorum að leggja af stað úr Kringlunni fékk Hreindís sms frá henni Gróu um það að stofa nr. 29 væri að fyllast:!:  Sem var ekki gott mál þar sem við vildu fá sæti á þessum yndislega fyrirlestri um eurovision hjá honum Páli Óskar hjartaknúsaranum sjálfum:!:  Komst ég að því að Svala og Hreindís eru á milli stigi nr. 3 og 4 í eurovision fan skalanum (ATH. Nr. 4 er mestu fanarnir ever) en já ég komst að mörgu skemmtilegu á þessum fyrirlestri:!:  Á fyrilestirnum sátu einnig Ágústa Eva og Björn Thors (líklegast til þess að fræðast um keppnina því þau eru víst að fara út í vor fyrir Íslandshönd) Þau sátu bara þarna og hlustuðu (sáut bara þarna og fæddust (ég sem hélt að þau myndu nú gubba einhverjum orðum út úr séren jæjja ég get ekki breytt því)).  Síðan var haldið heim og undib+uið sig fyrir árshátíðina sem var seinna um kvöldið og þetta yndislega matarboð sem við stelpurnar héldum  (í stað þess að verða okkur úti um fyrirpartý) fyrir ballið:!:  Við byrjuðum á því að mæta allar heim til hennar Hafdísar yndislegu:!: og elduðum við okkur allveg yndislegt fahítas og borðuðum svo ís með mars-rjóma sósu:!:  Síðan drifum við okkur á ballið sem var haldið á Hótel Sögu.  Ég, Guðrún og Helga tóku leigubíl á staðinn á meðan rest fékk far (eða réttara sagt fóru með henni Gróu sem er komin með bílpróf).  Ég og co. Vorum komnar á undan hinum stelpunum á ballið svo við ákváðum að bíða úti sem var mjög hressandi fyrir mig og Helgu en Guðrún greyið var að frjósa úr kulda:!:  Svo loks létu stelpurnar bóla á sér og við drifum okkur inn og dönsuðum svo mikið og vel:!:

Allir skemmtu sér svona fannta vel:!:, veit samt ekki með Guðrúnu þar sem hún var áður búin að fara á árshátíð með Milljónamæringunum og Páli Óskari (og þar af leiðandi kunni prógrammið utan að)en svo þegar Raggi Bjarna mætti á svæðið hresstist gellan við:!:.  Veit ekki með Tinnu:!:  Síðan fóru setelpurnar að tínast heim á meðan ég, Guðrún og Petra héldum allveg út til 2:!: ( svo stolt :haha:)

 

 



Á fimmtudeginum skelltum við okkur stelpurnar á Disney stund Klöru:!:  Það var allveg virkilega skemmtilegt og fræðandi um Silly Siphony-urnar:!: Þegar sú stund var búin var hálftíma hlé hjá okkur svo ég og Hafdís skelltum okkur í bakaríið og keyptum okkur að borða:!:  Þegar við komum afur upp í skóla drifum við okkur að borða og fórum svo niður í stofu 41 til þess aðp  horfa á spænska mynd (btw. Ég er ekki í spænsku).  Við horfðum á einhverja ástargrín mynd sem var gfrekar hallærisleg á köflum sen samt skemmtileg:!:  Síðan fór ég og kíti aðeins á kaffihúsið sem búið var að setja upp í Matgarði en síðan fór ég upp á Miðgarð og hitti Benediktu og við reyndum að byja á þessu bannsetta jarðfræði slide showi:!:  Eftir það lá leið mín heim að gera bókstaflega ekki neitt nema skella mér svo á Rkí fund seinna um kvöldið:!:

 

 



Á föstudeginum hitti ég Hreindísi á kaffi húsinu í Matgarði og við horfðum á kynninguna á leikritinum Glæpur gegn diskóinu sem ég er búin að plata Svölu til að fara á með mér:!:  Þegar kynningin var búin fórum ég og Hreindís í Kringluna og löbbuðum einn hring:!:  Þegar það var búið skelltum við okkur heim eða þar að segja ég en Hreindís hitti hana móður sína og þær seklltu sér í bæinn.  Ég dreif mig síðan á Rkí fund seinna þann dag og hitti síðan Hreindísi og við tókum saman strætó niður í skóla til þess að sjá söngkeppnina sem var haldin um kvöldið:!:  Það var allveg ótrúlega gaman og mikið var af flottum atriðum og kynnarnir voru geggjaðir:!:

 

 



En ætli ég verði ekki að hætta núna þar sem ég þarf að koma systur minni í rúmið:!:

**Góða nótt allir og sofið þið rótt:!:**


» 8 hafa sagt sína skoðun

15.02.2006 11:43:45 / ágústa

Nútíðin, Fortíðin og Framtíðin!

Kæru fiðurahnoðrar:!:

Ég sit hér að bókasafninu með henni Hreindísi og ákvað að blogga þó ég sé að fara í allveg shitt.....erfitt miðaldarpróf á morgun:!:  En só ég á eftir að læra allveg rosalega mikið en hef ákveðið að láta það ekki hrjá mér akkurat á þessu augnabliki:!: *Gott hjá þér*

En það hefur ekki margt gerst hjá mér undanfarið en nú samt eitthvað:!:  Ég er eiginlega ekkert búin að hafa haft tíma til að læra vegna anna hjá mér en samt er ekkert merkilegt búið að gerast nema það að ég var í myndatöku í gær (fermingarmyndatakan hennar Heiðrúnar) Við höfum bara ekki haft tíma til að geta farið í þessa myndatöku:!: en jæjja við drifum okkur í myndatöku í gær og ........... það er svo fyndið að þegar maður fer í svona myndatökur lærir maður allta eitthvað (eða alla vega ég), ég lærði það að ég held alltaf brosinu mínu inni og lít þess vegna eins og fáviti út svo það er kanski ástæðan fyrir því að ég myndast svona asskoti illa.:!:  En eiginlega beint eftir myndatökuna fór ég á kóræfingu og það vara æðislegt  eins og alltaf og svo var peninga afhending til Reykjalundar frá Kórnum (afhentum 400 þúsund kr.).  Síðan skellti ég mér heim og fór að sofa.

Ég vil nýta tækifærið og óska henni Hrefnu beibí hjartanlega til hamingju með afmælið:!: * knús og kossar*  Hún stækkkar svo fljótt:!:

Svo eru það Lagningardagarnir og árshátiðin í næstu viku:!:  Ég hlakkar ekkert smá til:!:  Og auðvitað ætlar hún Guðrún mín að skella sér með og hef ég frétt að mörgum ef ekki öllum stelpunum í 1. NA langar að koma á árshátíð MH:!:  Það er bara ásókn:!:  En ég held að það sé bara einn gestur á mann svo :!:  En já ég er búin að tala við Hildi og hún er búina ð samþykkja það að mála mig fyrir árshátiðina:!:  Ekki taka þessu samt þannig að ég ætli að verða allveg geggjað fín og í þvílíkt dekur:!::!:

En annars hef ég ekkert að segja nema það ég hef verið í allgjöru sjokki vegna hversu margir hafa heimsótt síðuna mína "yndislegu" sem mér skillst að sé allveg ömurleg en hvað með það:!:  Eða allavega að bloggið sé alls ekki að gera sig:!:  Segið mér hvernig bloggið hjá mér á að vera svo það lífgi upp á síðuna:!: PLÍS

MS árshátiðin er víst á morgun og STELPUR (Fanney og Anna) skemmtið ykkur allveg ótrúlega vel :!:

En ætli ég kveðji ekki að sinni:!:


» 5 hafa sagt sína skoðun

14.02.2006 12:25:18 / ágústa

uss..........2

Já Loksins komin í betri tölvu:!:

*Inga (Inga Katrín) mín ég er allveg til í að hitta þig í þessari viku*

Láttu mig bara vita hvenær þú hefur tíma:!:

En já gaman að þessu* Það sem gerst hefur hjá mér er ekki neitt reyndar:!:

Reyndar er ég að fara í myndatöku á eftir en það verður bara gaman:!:

Ekkert annað sem ég hef til að létta af hjarta mínu svo.............. Ég kveð að sinni:!: 


» 0 hafa sagt sína skoðun

14.02.2006 11:58:02 / ágústa

uss.........

Já sit hér í eyðu með Hafdísi og reyni að blogga á 17 mín.:!:

*Inga mín ég er allveg til í að hitta þig í þessari viku:!:*

Ekki margt gerst hjá mér en ég vona að eitthvað spennandi hafi gerst í þínu lífi undanfarna daga:!:

Jæjja ég nenni þessu ekki þar sem allar góðu tölvurnar eru búnar/uppteknar og ég þarf að vera í þessum lélegu til að blogga og vera á netinu:!:

En ætli ég slútti þessu bara ekki þar til ég kemst í betri tölvu svo sjáusmt*


» 0 hafa sagt sína skoðun

10.02.2006 19:54:31 / ágústa

Ég var víst klukkuð!

Fjögur störf sem ég hef unnið yfir æfina:

  • Unglinavinnan
  • Passa
  • Hjá Kaupsel ehf.
  • Vegagerðinni

Fjórar bíómyndir sem ég gæti horft á aftur og aftur:

  • Sound of Music
  • The Easterparaide (hverngi sem maður skrifar það)
  • Mary Poppins
  • Austin Powers - myndirnar

 Staðir sem ég hef búið á:

  • Nýlendugata 18
  • Kleifarsel 6
  • Vesturberg 75
  • Sunnuflöt 40

Fjórir sjónvarpsþættir sem mér líkar:

  • O.C.
  • The One Tree Hill
  • Friends
  • Gilmore Girls

Fjórir staðir sem ég hef heimsótt í fríum: 

  • Danmörk

  • Akureyri
  • Húsavík

  • Sauðarkrókur

Fjórar bækur sem að ég les oft:

  • Adda trólofast
  • Nancy bækurnar
  • Adam og Eva bækurnar
  • Og auðvitað má ekki gleyma skólabókunum:!:

Fjórir staðir sem ég vildi heldur vera núna:

  • Á sólarströnd
  • Á Idolinu
  • Á balli
  • Hjá einhverri vinkonu minni:!:

Fjórir  sem að ég skora á að gera þetta eru:

  • Heiðrún
  • Guðrún
  • Eydís
  • Arnar

» 2 hafa sagt sína skoðun

07.02.2006 12:06:06 / ágústa

Já Ýmislegt!

Já það eru greinilega skiptar skoðanir á þessu eurovisionmáli öllu með hana Silvíu Nótt:!:  En ég vona persónulega að hún fái nú að halda afram:!: og held ég að þó að lagið hennar hafi farið á netið skipti það ekki máli því hún hefði hvort eð er komist áfram eða það held ég:!:

En já ef við snúum okkur að öðru þá er ég búin að vera í allmiklu veseni með þetta skyndihjálparstarf allt saman:!:  Ég og Björk erum búnar að vera að reyna að koma á fundi síðan í byrjun desember en ekkert gengur:!: svo loksins erum við búnar að finna tíma þar sem við erum báðar lausar og þá er sett einhver 3 og hálfs klukkustunda ganga eftir skólatíma:!: og ef við mætum ekki þá fáum við 3 fjarvistir:!:  Ég er allveg sátt við þessa göngu en að hafa hana eftir skólatíma finnst mér út í hött:!:  Gangan á að leggja af stað kl. 15.30 og er til 19.00:!: mér finnst þetta kjaftæði en þar sem ég þarf að mæta þurfti ég að breyta fundartímanum og seinka honum um viku en þá......reddaðist það og við hittumst bara seinna á morgun:!:  Sem betur fer:!:

Svo er það árshátiðartímabilið hjá íslenskum framhaldsskólum:!:  Þess má geta að Nulurnar eru allar á árshátið á fimmtudegi út mánuðinn:!:  *Fannst það bara svolítið spes*  En hún Guðrún sæta ætlar með mér árshátið MH:!: og okkur báðum hlakkar ekkert smá til:!::haha:

En já ég er byrjuð í kirkjukórnum og það er allveg ótrúlega gaman:!:  Ég er búin að syngja í einni messu (síðasta sunnudag) og er að fara á æfingu í kvöld:!:

En ætli ég verði ekki að hætta þessu þar sem ég á að vera að vinna í þessu bansetta söguverkefni:!: ARRRRRRGGGGGGGG:evil::evil::^):^)


» 1 hafa sagt sína skoðun

04.02.2006 22:22:23 / ágústa

Eurovision!

Já hún Silvía Nótt komst áfram í undankeppni Eurovision:!:

Ég sem hélt að þetta yrði frekar glaðat miðað við karakterinn en mér fanns hún rokka:!:  Þetta var snilldar lag sem greip mann strax:!::haha:  En já einnig komust Bjartmar og Birgitta og fleiri:!:!  En ef við snúum okkur aftur að Silvíu Nótt, þá fannst mér snilld að hafa Idol dómarann Siggu Beinteins að syngja í bakröddum:!:

En ef við snúum okkur að öðru þá, já er vikan búin að frekar eðlileg:!:  Mér skillst samt að ég hafi verið frekar döpur þessa vikuna:!:  En ég hef ákveðið að þannig verð ég ekki í næstu viku:!:  En já þar sem ég hef ekki meira að segja þessa stundina bið ég að heilsa og kveð að sinni:!:


» 6 hafa sagt sína skoðun

01.02.2006 11:31:05 / ágústa

HA ?? Ha ?? Ég skil ekki !

Ekkert nema sæla sem lýsir allt upp.....eða hvað??

Nei ég veit það ekki:!:  Hvað er ég að blogga um??  Hvað er ég að gera??

Ég veit það:!:  Ég er í eyðu, gati, pásu, svefntíma eða hvað sem þú vilt kalla það:!:  Ég hef ekkert að gera nema að líta í stærðfræðibókina þar sem það er próf á morgun en ég hreinlega bara nenni ekki að læra núna þar sem ég er allveg að deyja úr nenni ekki að gera neitt skapi:!:  En ég ákvað að skella mér í það að bloggaþó að ég bloggaði seinast í gær:!:  En ég meina:!:

Það hefur nú ekki margt gerst síðan ég bloggaði síðast en ég ákvað samt að segja ykkur frá einni skemmtinlegri staðreynd:!:  Mér líður miklu betur en í fyrradag:!:  Ég vissi að þig langaði að vita það:!:  En það er allt saman henni móður minni að þakka að ég lít dagsins ljós og að mér líður svona vel í dag:!: einnig vil ég þakka henni Guðrúnu skvíz fyrir að hafa glatt mig svona mikið í gærkvöld:!:  Þú ert skvíza og þú verður bara að sætta þig við það elsku skvízan mín:!:  Einnig vil ég þakka Hjálmum fyrir það eitt að geta spilað tónlist sem henntar mér og gera það svona pasta vel:!:

En ef við snúum okkur að öðru þá var ég að spá hvað er það sem dregur mann svona að sjálfsvígi er það.......sársauki bæði andlega og líkamlega eða er það bara hrein sjálfumvonska??  Maður veit aldrei:!:

Einnig var ég að spá ............ Hvenær veit maður hvenær maður er tilbúin/nn??  Er ég til búinn eða er ég langt frá því??  (tilbúin/nn fyrir hvað eiga margir líklegast eftir að spyrja:!:  En þetta er bara eitthvað sem þið/þú verðið/verður að túlka sjálf/sjálfur:!:

En snúum okkur að alvöru þessa bloggs:!: *hvað er þetta með mig og upphrópunarmerki??*  Fanney Lára Sandholt, Fanney Lára Sandholt vinsamlegst hafðu samband við mig eins fljótt og auðið er:!::!::!:  Ég vænti þess að þú reynir að hafa samband við mig í síðasta lagi í byrjun næstu viku:!:  En annars stelpur hvað segið þið um að skella okkur eitthvert saman, keilu, bíó nei ekki bíó þá fáum við ekki að vera neitt svona almennilega saman:!:, leigja myndband eða stofna sam-bóka-lestrar-klúbb:!:??  Nei þetta voru bara hugmyndir:!:

En já ætli ég þurfi ekki að kveðja *þó ég þurfi þess ekki þá ætla ég samt að gera það þar sem þetta blogg hefur allgjörlega farið í rugl:!:  Mér leiddist/leiðist og bið ég ykkur að afsaka þetta blogg:!:*  Ég hafði bara ekkert að gera:!:


» 5 hafa sagt sína skoðun

31.01.2006 11:45:25 / ágústa

*Helgin

Næstum því vika síðan ég bloggaði seinast og ef ég á að segja eins og er þá líður mér alls ekki vel með það:!:

En helgin var allveg hreint yndisleg:!:

  • Skellti mér í það að taka til og er ekkert smá ánægð eftir það þar sem herbergið mitt var í rúst:!:
  • Fór á Eurovision undankeppnina í Sjónvarpinu:!:  Það var ekkert smá gaman en lent hliðina á einhverju skæklingum:!:  Það voru þarna 2 stelpur sem sátu við hliðina á mér og görguðu eins og ég veit ekki hvað:!:  Þetta voru ekki bara svona öskur heldur einhver skrækjandi hljóð sem ég var ekki allveg að fíla:!:  Og í hvert sinn sem þær öskruðu leit allur salurinn á þær og þar sem ég sat við hliðina á þeim var ég farin að halda að allir væru að horfa á mig eins og ég væri  með þeim í þessum öskrum:!: En annars var þetta æðislegt allt saman:!:
  • Lærði og chillaði bara eins og mér er lægið:!:

En ætli ég þurfi ekki að fara að snúa mér að þessu "yndislega" sögu verkefni:!:


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 10